laugardagur, 20. desember 2008

Jólin koma :)

Jæja þá fer að líða að jólum og Sönderborg orðinn svaka flottur jólabær. Ég er kominn í smá jólafrí og nú á bara að stjana við fjölskylduna.
Mamma, Pabbi og bróðir Önnu koma annan í jólum og verður svaka stuð og góður matur þá.
Hrefna og Helgi bróðir mömmu ætla að koma fyrir jól og eyða degi með okkur.
Við erum að fara í útanlansferð til þýskalands að kaupa í matinn fyrir hátíðina.
Það er búið að vera eitt jólaball hjá Malín í leikfimi-hópnum hennar og erum vip búin að kaupa risa jólatré.

Ég setti inn nýjar myndir og þær er hægt að sjá HÉR

Jólakveðjur frá Baunalandi

miðvikudagur, 10. desember 2008

Komin tími til skrifa

Jæja gott fólk þá eru smá fréttir af okkur.
Anna fékk vinnu eins og flestir vita í afleisingum og er sú törn búin í bili, í skólanum hjá mér er búið að vera brjálað að gera.
Amma Gunna Bína og afi Keli komu í heimsókn til okkar í 11 daga, frá 14 - 26 nóv.
Þar sem Anna var að vinna og nóg að gera hjá mér í skólanum náðist ekki að gera margt en þó var eitthvað brasað. Við fórum til Horsens til Helga bróður ömmu Gunnu Bínu og Hrefnu konunnar hans í heilan dag og borðuðum dýrindis kjúlla. Við keyrðum til Hamborgar í Þýskalandi og voru amma og afi að koma þangað aftur eftir 20 ára fjarveru :). Að sjálfsögðu fórum við út að borða með ömmu og afa á Mongolían Barbique sem er möst fyrir alla gesti og voru þau held ég bara mjög sátt við það. Helgi og Hrefna komu svo til okkar og borðuðum við saman og börnin léku sér.
Utan við þetta voru stelpurnar bara límdar við ömmu og afa og í heildina litið var frábært að fá smá heimsókn.
Nú er prófatörn hjá mér og klárast hún 16 des. Anna er búin að setja upp þó nokkuð af jólaskrauti og eru sumir nágranar okkar ekkert síðri en ljósabrjáluðu Íslendingarnir. Miðbærinn er orðin svaka jólalegur og okkur er farið að hlakka mikið til jólana í nýja landinu okkar. Og að fá ömmu Helgu, afa Bjössa og Magnús frænda í heimsókn til okkar annan í jólum. :)
Við biðjum kærlega að heilsa öllum heima fyrir.
Bestu kveðjur fólkið í baunalandi.

Ég er búinn að setja inn 3 nýjar myndamöppur og er hægt að skoða þær HÉR

laugardagur, 18. október 2008

Kreppu heppni.

Góðan og blessaðan daginn
Af okkur er ekki mikið að frétta annað en það að lífið er farið að ganga sinn vanagang. Nýja brumið er farið og daglegt amstur hér er orðin venjuleg rútína eins og það var heima.
Síðustu viku var ég (Gunni) í vetrarfríi í skólanum og þar sem engir peningar berast hingað frá fróni var bara legið og slappað af, stelpurnar eru líka það nýbyrjaðar á leikskóla að aðlögunin var varla búin svo þær voru bara á leikskólanum í vetrarfríinu.
Í gær tíndum við vínberin sem eru hjá okkur, þau voru sett í bala og stelpurnar fengnar til að stappa á þeim. Reynt var að gera vínberjasafa og dúllaði Anna við að gera vínberjagel. Rakel finnst vínberjasafinn rosalega góður en ég og Malín finnst hann ekkert spes. Ef einhver getur sent okkur uppskrift til að nýta vínber væri það frábært.

Nýjar myndir af vínberjaframleiðsunni má sjá HÉR.

Magnús Jónsson á afmæli í dag og óskum við honum innilega til hamingju með daginn.

Verið bargblessuð og sæl að sinni

Gunni Hall

fimmtudagur, 2. október 2008

fjölskyldu fréttir

Jæja af okkur er allt gott að frétta. malín er búin að missa fyrstu tönnina og þær systur eru byrjaðar í leikskóla.
Lífið hér í Danaveldi gengur sinn vanagang og skólinn er krefjandi og skemmtilegur.
Af íslandi er aftur á móti ekki allveg jafn gott ástand og vorum við að upplifa skemmtilegan tíma að því leit.
Við áttum að fá smápening frá íslandi en það var ekki hægt í bili þar sem ekki er hægt að fá Danskar krónur í dag. Það eru spennandi tímar fram undan og sennilega þeir lærdómsríkustu (vonandi) fyrir okkur Íslendinga.
Vil eiginlega lifa eftir þeirri speki núna að í erfiðleikum lærir maður mest (það hefur allavegna verið þannig í skólanum).
Búið er að setja in nýjar myndir.

Kveðja frá okkur öllum

miðvikudagur, 24. september 2008

Okkar yndislega króna !!!!!!!!!!

Jæja þá fór krónan okkar í sögulegt lágmark í dag.
Mér er minnistætt á síðustu önn í skólanum að við félagarnir vorum að gera grín af Robert Mugabe forseta Zimbabwe. Þar í landi var fólk farið að nota hjólbörur til trilla peningunum útí búð til að kaupa eina brauðsneið.
Nú er mér spurn "er einhver samlíking með Geir. H Haarde og Robba kallinum" ?
Hvað er langt í svipað ástand með krónuna ? og alltaf er útlöndum kennt um (sem hlómar soldið líkt og hjá Robba).
Ef fólk kíkkar í linkana á Wikipedia af þessum tveim mönnum þá er hægt að lesa í það hvað margar greinar er þar til við náum sömu stöðu, og miðað við fallhraða krónunnar meiga greinarhöfundar fara að hafa sig alla við.
Ég vildi bara að ég væri hér í Danmörk að vinna en ekki í skóla, vá hvað lífið væri yndislegt þá.
Hægt væri að koma heim í frí og kaupa sér Ferrari á Íslandi og henda honum eftir heimsóknina. Keypt Siglufjörð og notið kyrðarinnar með gömlu gull snekkjuna hans Saddams Hussein í höfninni.
Já Ísland er að sökkva í olgusjó frjármálamarkaða heimsinns og Geir segir bara "þetta er allt þeima um að kenna" bvahahahahahah (grow up Geir).
Ég er ekki að segja að þetta sé allt Geir um að kenna og hef takmarkaða vitneskjum um það heilt yfir en get ekki að því gert að trúa því að einhverstaðar sé pottur brotinn á Íslandi líka. Væri ekki annars ástandið jafslæmt gagnvat krónunni annarstaðar. Skil ekki þessi rök að krónan sé svona að því ástandi annarstaðar sé svo slæmt. Ef ástandið annarstaðar er svona slæmt afhverju eru þá gjaldmiðlar annarstaðar svona sterkir gagnvart krónunni spyr ég.
Ef einhver getur gefið mér góð svör við því þá væri gaman að heyra þau.
Ég óska fyrirtækjum í útfluttningi alls hins besta.
Bestu kveðjur heim.

mánudagur, 22. september 2008

Helgin 19 - 21 september.

Jæja þá er en ein helgin liðin og nóg var um að vera.
Á laugardeginum fengum við Sigrúnu og Reynir í mat til okkar og var Rakklet fyrir valinu, maturinn var eins og hver og einn eldaði hann og tókst þetta bara ansi vel til hjá okkur. Börnin fengu hamborgara og svo gerði Anna súkkulaði mús í eftirrétt. Eftir matinn fórum við útí garð og kveiktum eld sem var ansi gaman.
Á sunnudeginum fórum við kl 13 í Katrínarlundinn aftur og hittum þar nokkra íslenska skólafélaga mína ásamt börnum og mökum og var grillað þar og kveiktur eldur sem börnin höfðu verulega gaman af. Börnin kepptust við að fara inní skóginn til að finna eldivið og henda á og einn strákurinn fann frosk og sýndi öllum hinum börnunum. Við hittum einnig nokkra hesta og var tekið vel í að leyfa börnunum að klappa, einn þeirra dró stærðarinnar hestakerru.
Nú er helgin liðin og aftur tekur skólinn við hjá mér og Anna dúllar með stelpunum á daginn.
Stelpurnar byrja í leikskóla næsta miðvikudag og það held ég að verði mikill léttir fyrir þær, farnar að sakna mikið vinkona sinna út leikskólanum heima.
Malín finnst allur matur ekki vera eins góður og í leiksskólanum heima og þar fram eftir götunum.
Við biðjum fyrir bestu hveðjum til allra og sérstaklega Leikskólanum Hólaborg að þessu sinni :)
kveðja Gunni og family.

fimmtudagur, 18. september 2008

Betra er seint en alldrei

Af okkur er allt það besta að frétta.

Síðastliðna helgi kom amma Helga í heimsókn og var hjá okkur frá fimmtudegi til þriðjudags.
Ekki var laust við að stelpurnar rifnuðu úr gleði þegar þær sáu ömmu koma úr lestinni.
Við erum búin að koma okkar ágætlega fyrir í húsinu og fékk amma að prófa nýju gesta rúmmin okkar, og kepptust stelpurnar við að haga sér sem allra best svo þær gætu sofið uppí hjá ömmu.
Helga leigði bíl yfir helgina og var byrjað á að fara til Þýskalands (Flensborgar) að skoða og fengum við okkur ís og vöfflur á göngugötunni þar, á heimleiðinni var svo stoppað á Grensunni (landamæra búð ) og keypt mikið af bjór, gosi og víni ásamt einhverju öðru :).
Á Sunnudeginum keyrðum við upp til Billund og fórum í Lególand, sá dagur var allgerlega fullkominn. Sól og blíða stelpurnar í frábærum gír og allir áttu æðislegan dag. Stelpunum tókst að fá ömmu í nokkur tæki og ekki sluppu mamma og pabbi heldur frá því, Malín fór með mömmu sinni og pabba í stæðsta vatnsrúsibanann og vildi bara meira.
Amma fór svo heim á þriðjudeginum eins og áður kom fram og ekki vantaði söknuðinn í stelpurnar og okkur strax á flugvellinum.
Takk fyrir komuna Amma Helga og takk fyrir okkur.

Af fjölskyldunni er það helst að frétta núna að stelpurnar eru komnar inn á leikskóla frá og með 1. okt og eru allir að verða spenntir fyrir því. Skólinn gengur sinn vana gang hjá mér og Anna ætlar að reyna að finna vinnu þegar stelpurnar eru byrjaðar í leikskóla.

Læt þetta duga í bili og bið fyrir bestu kveðjum á klakann.

þriðjudagur, 9. september 2008

Helv......... DANKORT

Nú er ég pínu pirraður útí þessa Dani.
Þannig er það hér að ef þúr ert ekki með svokallað Vísa DANKORT þá liggur við að ekki sé hægt að kaupa neitt hérna. Ég var í búð sem heitir Lidl og búinn að fylla kerruna af einhverju góssi búinn að standa í röð á kassan í hálftíma þegar ég komst að því að þetta er enn ein helv......... búðin sem tekur bara DANKORT.
Held að það sé ekkert skrýtið við það að Jón Ásgeir og félagar séu að gera góða hluti með Magasin.
Það er bara ekki til þjónustulund né söluvilji í þessu fólki.
Þetta land er fullt af tækifærum fyrir peningafólk því ekki veit ég hver á hvaða forsendum verslun er í gangi hér ( ekki til að græða hið minnsta ).
Við erum búin að stofna reikning í NORDEA bankanum og þar er okkur tjáð að við þurfum að bíða í 3 - 6 mán með að fá þetta DANKORT.
HVAÐ ER AÐ HJÁ DANANUM HÉR !!!!!!!!!!!.
Ekki laust við að finnast maður vera allgerlega annarsflokks þegar kemur að þessum málum.

ARGGGGGG og bless

6. September Haustfagnaður Íslendingafélagsins í Sönderborg.

Sæl og blessuð öll sömul.

Haustfagnaður Íslendingafélagsins í Sönderborg fór fram í Katrínarlundi þann 6. september og tókst í alla staði frábærlega.
Við röltum þangað með vinafólki okkar þeim Sigrúnu og Reyni ásamt börnum þeirra þremur og hundi. Það var spáð rigningu þenna dag en eins og fólk sér á myndunum þá var bara sól og blíða.
Börnin gersamlega blómstruðu og vissi maður varla af þeim allan daginn.
Þarna voru grillaðar pylsur og kótelettur, gos og bjór var í boði og punkturinn yfir iið var Íslenskt nammi í lokinn.
Eftir fögnuðinn í lundinum buðu Sigrún og Reynir okkur heim í hangikjöt og verður að segjast að sennilega er þetta lang besti maturinn síðan við fluttum út. Takk kærlega fyrir okkur :).
Við karlarnir fengum síðan útgönguleyfi um kvöldið og fórum við á Loftið ( Aðsetur Íslendingafélagsins í Sönderborg). Þar var boðið uppá ódýrar veitngar í blautari kantinum og skemmti atriði að Íslenskum sjóara sið !!!!!!!!.

Þetta var sem sagt frábær dagur í alla staði og gaman að hitta landa sína.

Læt þetta duga um þennan dag.

fimmtudagur, 4. september 2008

A-Z eru ekki allveg að standa sig

Góðan daginn allir

Í gær áttum við að fá slatta af húsgögnum eftir 8 daga bið frá Versluninni A-Z hér um bil í næsta húsi við okkur. Anna beið heima allan daginn og ekkert gerðist, þegar ég kom heim úr skólanum kl 18:30 þá bað ég Önnu að hringja og tjekka á þessu. Fengum við þá það svar að það hefði verið keyrt út um morguninn og enginn verið heima ???
Anna sat á gólfinu að horfa á imban með stelpunum allan morguninn sem er við gluggan hjá útidyrahurðinni. Við urðum frekar reið þegar þau vildu meina að við værum bara að ljúga til um að hafa verið heima þegar komið var og endaði þetta með því að við gætum ekki fengið þessi húsgögn fyrr en á föstudag. Þess má kanski geta að þetta var sófi fyrir stofuna, sófaborð, sjónvarpsborð og skennkur. Sem sagt allt í stofuna sem er búin að vera hálf tóm síðan við komum í stóra húsið.
Um daginn hittum við frábært íslenskt par niður á strönd og fékk anna símanúmerið hjá stelpunni sem heitir Sigrún sem er varla frá sögu færandi nema að Anna hringdi í Sigrúnu og kallinn hennar sem heitir Reynir kom á bíl og reddaði okkur allgerlega.
Við sem sagt straujuðum bara upp í búð og sóttum dótið.
Þjónustulund er eitthvað sem vanntar allgerlega í Dani.

bless bless í bili

Helgin 29 - 31 Ágúst

Hæ og Hó

Helgina 29.- 31. ágúst fórum við fjölskyldan og hittum afa Bjössa, Ömmu Helgu og Magga frænda í kóngsins Kaupmannahöfn. Reyndar fór Anna með börnin þann 28. ágúst en ég þurfti að sitja efir og mæta fyrstu 2 dagana í skólann.
Ástæða þess að allir voru að hittast í Köben var sú að Tina (frænka Önnu) og Kristoffer kærasti hennar voru að gifta sig.
Við gistum í íbúð hjá Sigrúnu sem er með fullt að íbúðum til leigu í köben og fór vel um okkur þar.
Áður en ég komst til Köben náðu Anna og fjölskylda að líta með stelpurnar í tívolíð og skilst mér að Þaggi frændi hafi fengið lítinn frið frá öllum barnatækjunum hehe.
Giftingin fór fram í Ráðhúsinu í Fredriksberg (minnir mig) og var svo lítið öðruvísi en ég er vanur, þarna biðu nokkrir giftingahópar eftir sýslumanni sem staddur var í einu herbergi. Þegar komið var að okkar parti þá fórum við inní þetta herbergi sem var bara ansi kósí og giftingathöfnin fór af stað. Athöfnin sjálf var ekki löng en var bara skemmtileg. Eftir athöfnina fóru allir út í garð þar sem boðið var uppá drykki til að skála áður en haldið var á staðin þar sem sjálft giftingarveislan fór fram og verður að segja að sólin lék um hvern sinn fingur þennan daginn.
Giftingarveislan var allveg frábær, Lax í forrétt, heilgrillað svín og heilgrillað lamb í aðalrétt og kaffi, koníak, léttvín, bjór og gos ásamt frábærum kökum í eftirrétt.
Fólk blandaði mikið geði saman og verð ég að segja að þetta var rosalega skemmtilegt.
Við komum heim seint um kvöld með stelpurnar sem voru hrókar alls fagnaðar í veislunni.

Við þökkum kærlega fyrir okkur Tina og Kristoffer

Þar til næst Bæ Bæ allir

mánudagur, 25. ágúst 2008

Útfluttnings- ferðasagan

Þann 7. ágúst fluttum við út og kom "litli" bróðir (Fannar) Gunna með okkur út til að aðstoða fyrstu 2 vikurnar í hinu nýja landi Danmörk.
Byrjað var á að gista í íbúð í kóngsins Köben fyrstu helgina. Tíminn í köben var notaður til að gera eitthvað skemmtilegt og var farið í tívolí og í dýragarinn. Í tívolíinu fengum við frábært veður og voru stelpurnar mjög spenntar eftir ferð um H.C. Andersen æfintýrin, og Malín ætlar sko aftur og aftur í víkingaskipin. Dýragarinn var frábær einnig og veður þokkalegt, dýrin voru óvenju lífleg og ber þar helst að nefna ísbyrnina sem léku sér eins og stórir hvolpar. Það var komið nýtt búr með flóðhestum og var allveg magnað að sjá stelpurnar standa við glerið meðan þessir hlunkar syntu þar hjá.
Eftir að dvölinni í Köben lauk héldum við til Horsens þar sem Helgi bróðir mömmu (Gunnu Bínu ) býr með henni Hrefnu sinni og 3 krökkum. Þar sem búslóðin okkar tafðist um 2 daga í tollafgreiðslu voru þau svo frábær að leifa okkur að gista hjá sér. Veðrið var nokkuð gott og var okkur boðið í veislu mat með nægri kokteilsósu :).
Þegar við komum til Sönderborgar fanst okkur 60 fermetra íbúiðin mun minni en við höfðum reiknað með (sennilega er meterinn eitthvað styttri í Danaveldi). Við vorum þó ákveðin í að láta okkur hafa þetta á þessu kollegi allveg þangað til við komumst að því að hurðin hægra megin við okkar var skemmtistaður fyrir 3 kollegi :(.
Fystu nóttina eftir að við fengum búslóðina var hjólunum okkar stolið og íbúðin stútfull af kössum.
Við fengum af því fréttir í gegnum mömmu (Helgu) sem skoðaði netsíðuna hjá Íslendingafélaginu í Sönderborg að stór og rúmgóð íbúð væri laus þar sem Íslendingar sem ætluðu að legja hana þyrftu skyndilega að fara heim. Við settum okkur strax í samband og fengum þessa íbúð sem reyndar reyndist vera einbílishús með smá hliðar íbúð fyrir son eigendanna. Árný stelpan sem hafði ætlað að leigja þetta hús reyndist vera allveg frábær manneskja og gersamlega bjargaði okkur (Takk fyrir okkur Árný).
Nú erum við semsagt kominn í risa hús með allt til alls nema húsgögn þar sem við skildum allt stórt eftir heima þar sem við töldum okkur vera að fara í 60 fermetra.
Því verður reddað eins fljótt og hægt er hehe.
Lengra hef ég það ekki í bili
Kær kveðja Stórfjöldskyldan í Danaveldi

sunnudagur, 24. ágúst 2008

Þá er bloggið byrjað

Nú er búið að stofna blogg síðu.
Vonandi verðum við aktív í að tilkynna hvað á daga okkar hefur drifið hér í Sönderborg næstu 2 árin.