þriðjudagur, 9. september 2008

Helv......... DANKORT

Nú er ég pínu pirraður útí þessa Dani.
Þannig er það hér að ef þúr ert ekki með svokallað Vísa DANKORT þá liggur við að ekki sé hægt að kaupa neitt hérna. Ég var í búð sem heitir Lidl og búinn að fylla kerruna af einhverju góssi búinn að standa í röð á kassan í hálftíma þegar ég komst að því að þetta er enn ein helv......... búðin sem tekur bara DANKORT.
Held að það sé ekkert skrýtið við það að Jón Ásgeir og félagar séu að gera góða hluti með Magasin.
Það er bara ekki til þjónustulund né söluvilji í þessu fólki.
Þetta land er fullt af tækifærum fyrir peningafólk því ekki veit ég hver á hvaða forsendum verslun er í gangi hér ( ekki til að græða hið minnsta ).
Við erum búin að stofna reikning í NORDEA bankanum og þar er okkur tjáð að við þurfum að bíða í 3 - 6 mán með að fá þetta DANKORT.
HVAÐ ER AÐ HJÁ DANANUM HÉR !!!!!!!!!!!.
Ekki laust við að finnast maður vera allgerlega annarsflokks þegar kemur að þessum málum.

ARGGGGGG og bless

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll Gunnar og fjölskylda.. Varðandi Dankort þá held ég að Danske Bank séu hressari varðandi kort og það sé hægt að fá þau nánst strax ;) Kveðja, Örvar í Kaupmannahöfn