þriðjudagur, 30. júní 2009

Nýjar myndir

Jæja þá hefur maður loksins skellt inn myndum, þær spanna hér um bil það sem af er liðið þessa árs.

Af okkur er allt það besta að frétta nema hvað hitinn er að stríða okkur soldið á nóttunni.
Helga (amma), Afi (Bjöss) og Magnús frændi komu í heimsókn 5-22 júní og skillst mér að það hafi ýmislegt verið brallað og brasað þó veðrið hefði getað verið betra. Við fórum öll saman í Hans Park sem er tívolí garður c.a. 150 km inní Þýskalandi eftir að ég kláraði prófin.
Um liðna helgi fórum við til Horsens yfir helgi í smá heimsókn til Helga og Hrefnu til að berja nýjasta afkvæmi þeirra augum. þessi helgi var yndisleg þar sem við fórum í nokkra bæi, grilluðum úti, týndum Jarðaber og margt fleira.

Það er hægt að klikka hér til að fara beint á myndirnar.

Bestu kveðjur
Gunni hall og family

fimmtudagur, 7. maí 2009

Nýtt að frétta !!!

Anna er með stelpurnar á Íslandi og ég er á fullu að læra, það gaf mér tíma til að setja inn nýjar myndir :) svo það er hægt að skoða þær hér. Fyrir utan það er ekki mikið að frétta annað en það að mig hlakkar mikið til að fá allar stelpurnar heim. skólinn gengur sinn vanagang og hópurinn minn í annarverkefninu vonast til að þyrlan sem við erum að smíða fari í loftið fljótlega (mydir af þyrlunni er hægt að skoða hér).
Sæl að sinni
Einstakar kveðjur frá baunalandi.

sunnudagur, 12. apríl 2009

Sæl öll sömul.
Nú er loksins komið að því að fara að blogga aftur eftir langan tíma. Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni.......
Af okkur hér í Sönderborg er bara allt gott að frétta og allir við hesta heilsu. Vorkvefið hefur þó aðeins sagt til sín en það er allt að koma. Gunni er búin með öll próf og náði upptökuprófinu með glæsibrag eins og honum er von og vísa bara með 10 :) Anna Sigga er búin að vera að leysa af á sama leikskóla og síðast og var þar fram í lok mars. Þegar því var lokið fékk hún tilboð í að leysa af í fæðingarorlofi á leiskólanum hjá stelpunum og tók hæún því tilboði. Þar verður hún fram í lok júní og það verður spennandi að sjá hvernig stelpurnar munu taka því að hafa hana hjá sér allan daginn.
Amma Helga og afi Bjössi komu í heimsókn í byrjun mars. Amma Helga kom á fimmtudegi og var í 11 daga og var það yndislegur tími en afi Bjössi kom á föstudegi og fór á sunnudegi og var þetta allt of stutt stopp hjá þeim báðum. Það verður vonandi lengra næst. Rakel leitaði mikið af afa sínum en ungfrú Malín sagði við hana að hann væri farin til Íslands og kæmi fljótt aftur. Á meðan amma var fórum við að skoða Slottið hér og var það Malín María sem sýndi okkur hinum það og var hinn besti leiðsögumaður, en hún hafði farið þangað með leikskólanum fyrir jól og þekkti það vel. Við höfðum hugsað okkur að gera margt fleira en það varð að bíða þar sem Rakel tók upp á því að leggjast í einvherja leiðinda pest og Anna Sigga þurfti að vinna. Eftir að amma fór þá var mikið spurt um hana og mikill söknuður í gangi, svo voru foreldrarnir spurðir hver ætti að vera svona góðir eins og amma að lesa alltaf á hverju kvöldi.
Rétt eftir að Amma Helga fór heim kom Maggi Gauti í heimsókn og var hjá okkur í 9 daga og var að sjálfsögðu tekið vel á móti honum og honum rétt einn bjór um leið og hann kom inn um dyrnar. Maggi fann sér heilmargt til dundurs á meðan Gunni var í skólanum, Anna Sigga að vinna og stelpurnar í leikskólanum. Maggi Gauti fór meðal annars til Þýskalands og það í tvígang einu sinni til að versla inn fyrir afmæli stelpnanna sem var á meðan hann dvaldi hjá okkur. Og svo skrapp hann dagsferð með Gauta (vin Gunna), þá var farið í grillveislu og svo að sjálfsögðu sýndi Malín María honum og Pabba sínum Slottið, vakti það mikla gleði hjá öllum. Svo kom að því að hann þurfti að fara heim aftur og varð mikil söknuður hjá ungum stelpum að frændi þeirra væri farin heim.
Páskarinr nálguðust óðum og var mikið um að vera þessa helgi, fullt af veislum og fjöri. Á páskadags morgun vaknaði Malín og kom hlaupandi inn til foreldranna og sagði að nú væir komin dagur og það væru komnir páskar. Hún hljóp niður að útihurðinni og bað pabba sinn að opna til að hún gæti kíkt í póstkassann þar sem hún ætti von á páskaeggja sendingu. Sendingin var ekki komin þegar hún kíkti en síðar um daginn byrtist pósturinn og setti tvö egg í kassann. Þegar þær kíktu í hann sagði sú stóra "Ég vissi að þau kæmu í pósti".
Jæja við látum þetta duga í byli.
Gleðilega páska allir saman.
Bestu kveðjur Anna Sigga, Gunni, Malín María og Rakel Rán

fimmtudagur, 29. janúar 2009

SMÁ FRÉTTIR

Af okkur er alltaf jafn gott að frétta, Síðasta önn er svo að segja búinn (eitt upptökupróf eftir) og næsta önn að byrja 2. feb. Veturinn hefur verið með mildara móti miðað við hvað maður þekki að heiman þó heimamenn tali um að þetta sé mjög kaldur vetur, ekki nóg það heldur var snjór hér í 4 daga um daginn.
Ein kanínan sem við erum að passa fór til dýralæknis því hún er farin að fara fá skalla bletti. Ekki er það þó sökum allurs heldur er þetta eitthvað snýkjudýr sem fólk þarf ekki að hræðast og er greiið komið á rólegan lyfjakúrs.
Málín er komin í undirbúnings dönsku nám fyrir grunnskólann í leikskólanum og fer að að mestu fram í gegnum leiki sem henni þykir ekki leiðinlegt.
Rakel er nýskriðin uppúr flensu og fer í leikskólann aftur eftir helgi.
Anna er farinn að próna og hekla eins og hún fá borgað fyrir það enda eru rosalega margir Íslendingar á leiðinni í kringum okkur :)

Meira verður það ekki að sinni
Heil og sæl ríkisstjórnarlausa þjóð
bestu kveðjur frá Dönunum hehe

föstudagur, 9. janúar 2009

Jólin farin

Sæll öll
Jólin voru frábær hér í Sönderborg. Á aðfangadag var rosalega rólegt hjá okkur stórfjölskyldunni og borðuðum við einhverja þa bestu önd sem elduð hefur verið. Sigrún og Reynir komu með börnin á jóladag og var þar al-Íslenskt yfirbragð ráðandi með hangikéti, uppstúf og grænum Ora baunum. Annan í jólum komu mamma(amma), pabbi(afi) og bróðir(frændi) Önnu og beið þeirra besta gæs sem elduð hefur verið fyrr og síðar. Þau voru hjá okkur til 4 jan og var það frábær tími. Ég var soldið í skólanum á milli jóla og ný árs og gat þar af leiðandi ekki farið allt með þeim. Þau fóru til þýskalands og rúnt um eyjuna Als (sem við búum á) og saman fórum við í sætan bæ sem heitir Tunder sem er c.a. 100 km vestur af okkar bæ, það var mjög góður og forvitnilegur dagur og þangað verum við að fara aftur.
Síðan teindó fór hefur nýja árið farið rólega af stað í venjulegt amstur og skólinn byrjaður á fullu hjá mér og stelpunum.
Malín er að byrja 2 daga í viku í dönskuskóla (byrjun dags í leikskólanum) og Anna er búin að fá smá að gera í afleysingum í Leikskólanum Als og er á fullu að leita sér að meira varanlegri vinnu.

Takk fyrir komuna og okkur teindó.

Ég hef sett in nýjar myndir frá jólunum okkar og hægt að sjá þær HÉR.

Kveðaj frá baunalandi