mánudagur, 25. ágúst 2008

Útfluttnings- ferðasagan

Þann 7. ágúst fluttum við út og kom "litli" bróðir (Fannar) Gunna með okkur út til að aðstoða fyrstu 2 vikurnar í hinu nýja landi Danmörk.
Byrjað var á að gista í íbúð í kóngsins Köben fyrstu helgina. Tíminn í köben var notaður til að gera eitthvað skemmtilegt og var farið í tívolí og í dýragarinn. Í tívolíinu fengum við frábært veður og voru stelpurnar mjög spenntar eftir ferð um H.C. Andersen æfintýrin, og Malín ætlar sko aftur og aftur í víkingaskipin. Dýragarinn var frábær einnig og veður þokkalegt, dýrin voru óvenju lífleg og ber þar helst að nefna ísbyrnina sem léku sér eins og stórir hvolpar. Það var komið nýtt búr með flóðhestum og var allveg magnað að sjá stelpurnar standa við glerið meðan þessir hlunkar syntu þar hjá.
Eftir að dvölinni í Köben lauk héldum við til Horsens þar sem Helgi bróðir mömmu (Gunnu Bínu ) býr með henni Hrefnu sinni og 3 krökkum. Þar sem búslóðin okkar tafðist um 2 daga í tollafgreiðslu voru þau svo frábær að leifa okkur að gista hjá sér. Veðrið var nokkuð gott og var okkur boðið í veislu mat með nægri kokteilsósu :).
Þegar við komum til Sönderborgar fanst okkur 60 fermetra íbúiðin mun minni en við höfðum reiknað með (sennilega er meterinn eitthvað styttri í Danaveldi). Við vorum þó ákveðin í að láta okkur hafa þetta á þessu kollegi allveg þangað til við komumst að því að hurðin hægra megin við okkar var skemmtistaður fyrir 3 kollegi :(.
Fystu nóttina eftir að við fengum búslóðina var hjólunum okkar stolið og íbúðin stútfull af kössum.
Við fengum af því fréttir í gegnum mömmu (Helgu) sem skoðaði netsíðuna hjá Íslendingafélaginu í Sönderborg að stór og rúmgóð íbúð væri laus þar sem Íslendingar sem ætluðu að legja hana þyrftu skyndilega að fara heim. Við settum okkur strax í samband og fengum þessa íbúð sem reyndar reyndist vera einbílishús með smá hliðar íbúð fyrir son eigendanna. Árný stelpan sem hafði ætlað að leigja þetta hús reyndist vera allveg frábær manneskja og gersamlega bjargaði okkur (Takk fyrir okkur Árný).
Nú erum við semsagt kominn í risa hús með allt til alls nema húsgögn þar sem við skildum allt stórt eftir heima þar sem við töldum okkur vera að fara í 60 fermetra.
Því verður reddað eins fljótt og hægt er hehe.
Lengra hef ég það ekki í bili
Kær kveðja Stórfjöldskyldan í Danaveldi

sunnudagur, 24. ágúst 2008

Þá er bloggið byrjað

Nú er búið að stofna blogg síðu.
Vonandi verðum við aktív í að tilkynna hvað á daga okkar hefur drifið hér í Sönderborg næstu 2 árin.