Sæl öll sömul.
Nú er loksins komið að því að fara að blogga aftur eftir langan tíma. Það er ótrúlegt hvað tíminn flýgur frá manni.......
Af okkur hér í Sönderborg er bara allt gott að frétta og allir við hesta heilsu. Vorkvefið hefur þó aðeins sagt til sín en það er allt að koma. Gunni er búin með öll próf og náði upptökuprófinu með glæsibrag eins og honum er von og vísa bara með 10 :) Anna Sigga er búin að vera að leysa af á sama leikskóla og síðast og var þar fram í lok mars. Þegar því var lokið fékk hún tilboð í að leysa af í fæðingarorlofi á leiskólanum hjá stelpunum og tók hæún því tilboði. Þar verður hún fram í lok júní og það verður spennandi að sjá hvernig stelpurnar munu taka því að hafa hana hjá sér allan daginn.
Amma Helga og afi Bjössi komu í heimsókn í byrjun mars. Amma Helga kom á fimmtudegi og var í 11 daga og var það yndislegur tími en afi Bjössi kom á föstudegi og fór á sunnudegi og var þetta allt of stutt stopp hjá þeim báðum. Það verður vonandi lengra næst. Rakel leitaði mikið af afa sínum en ungfrú Malín sagði við hana að hann væri farin til Íslands og kæmi fljótt aftur. Á meðan amma var fórum við að skoða Slottið hér og var það Malín María sem sýndi okkur hinum það og var hinn besti leiðsögumaður, en hún hafði farið þangað með leikskólanum fyrir jól og þekkti það vel. Við höfðum hugsað okkur að gera margt fleira en það varð að bíða þar sem Rakel tók upp á því að leggjast í einvherja leiðinda pest og Anna Sigga þurfti að vinna. Eftir að amma fór þá var mikið spurt um hana og mikill söknuður í gangi, svo voru foreldrarnir spurðir hver ætti að vera svona góðir eins og amma að lesa alltaf á hverju kvöldi.
Rétt eftir að Amma Helga fór heim kom Maggi Gauti í heimsókn og var hjá okkur í 9 daga og var að sjálfsögðu tekið vel á móti honum og honum rétt einn bjór um leið og hann kom inn um dyrnar. Maggi fann sér heilmargt til dundurs á meðan Gunni var í skólanum, Anna Sigga að vinna og stelpurnar í leikskólanum. Maggi Gauti fór meðal annars til Þýskalands og það í tvígang einu sinni til að versla inn fyrir afmæli stelpnanna sem var á meðan hann dvaldi hjá okkur. Og svo skrapp hann dagsferð með Gauta (vin Gunna), þá var farið í grillveislu og svo að sjálfsögðu sýndi Malín María honum og Pabba sínum Slottið, vakti það mikla gleði hjá öllum. Svo kom að því að hann þurfti að fara heim aftur og varð mikil söknuður hjá ungum stelpum að frændi þeirra væri farin heim.
Páskarinr nálguðust óðum og var mikið um að vera þessa helgi, fullt af veislum og fjöri. Á páskadags morgun vaknaði Malín og kom hlaupandi inn til foreldranna og sagði að nú væir komin dagur og það væru komnir páskar. Hún hljóp niður að útihurðinni og bað pabba sinn að opna til að hún gæti kíkt í póstkassann þar sem hún ætti von á páskaeggja sendingu. Sendingin var ekki komin þegar hún kíkti en síðar um daginn byrtist pósturinn og setti tvö egg í kassann. Þegar þær kíktu í hann sagði sú stóra "Ég vissi að þau kæmu í pósti".
Jæja við látum þetta duga í byli.
Gleðilega páska allir saman.
Bestu kveðjur Anna Sigga, Gunni, Malín María og Rakel Rán
sunnudagur, 12. apríl 2009
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)