Af okkur er allt það besta að frétta nema hvað hitinn er að stríða okkur soldið á nóttunni.
Helga (amma), Afi (Bjöss) og Magnús frændi komu í heimsókn 5-22 júní og skillst mér að það hafi ýmislegt verið brallað og brasað þó veðrið hefði getað verið betra. Við fórum öll saman í Hans Park sem er tívolí garður c.a. 150 km inní Þýskalandi eftir að ég kláraði prófin.
Um liðna helgi fórum við til Horsens yfir helgi í smá heimsókn til Helga og Hrefnu til að berja nýjasta afkvæmi þeirra augum. þessi helgi var yndisleg þar sem við fórum í nokkra bæi, grilluðum úti, týndum Jarðaber og margt fleira.
Það er hægt að klikka hér til að fara beint á myndirnar.
Bestu kveðjur
Gunni hall og family
1 ummæli:
Frænkan er í skýjunum yfir þessu öllu hjá ykkur, öllu nema þá skorti af fréttum frá litlu skvísunum mínum.
Það sem ég óska mér í jólagjöf eru nýjar myndir inn á vefinn af skvísunum ;)
Þúsund kossar.
Ástar og saknaðarkveðja úr 101 Rvík
Fannsa pannsa
Skrifa ummæli