fimmtudagur, 4. september 2008

Helgin 29 - 31 Ágúst

Hæ og Hó

Helgina 29.- 31. ágúst fórum við fjölskyldan og hittum afa Bjössa, Ömmu Helgu og Magga frænda í kóngsins Kaupmannahöfn. Reyndar fór Anna með börnin þann 28. ágúst en ég þurfti að sitja efir og mæta fyrstu 2 dagana í skólann.
Ástæða þess að allir voru að hittast í Köben var sú að Tina (frænka Önnu) og Kristoffer kærasti hennar voru að gifta sig.
Við gistum í íbúð hjá Sigrúnu sem er með fullt að íbúðum til leigu í köben og fór vel um okkur þar.
Áður en ég komst til Köben náðu Anna og fjölskylda að líta með stelpurnar í tívolíð og skilst mér að Þaggi frændi hafi fengið lítinn frið frá öllum barnatækjunum hehe.
Giftingin fór fram í Ráðhúsinu í Fredriksberg (minnir mig) og var svo lítið öðruvísi en ég er vanur, þarna biðu nokkrir giftingahópar eftir sýslumanni sem staddur var í einu herbergi. Þegar komið var að okkar parti þá fórum við inní þetta herbergi sem var bara ansi kósí og giftingathöfnin fór af stað. Athöfnin sjálf var ekki löng en var bara skemmtileg. Eftir athöfnina fóru allir út í garð þar sem boðið var uppá drykki til að skála áður en haldið var á staðin þar sem sjálft giftingarveislan fór fram og verður að segja að sólin lék um hvern sinn fingur þennan daginn.
Giftingarveislan var allveg frábær, Lax í forrétt, heilgrillað svín og heilgrillað lamb í aðalrétt og kaffi, koníak, léttvín, bjór og gos ásamt frábærum kökum í eftirrétt.
Fólk blandaði mikið geði saman og verð ég að segja að þetta var rosalega skemmtilegt.
Við komum heim seint um kvöld með stelpurnar sem voru hrókar alls fagnaðar í veislunni.

Við þökkum kærlega fyrir okkur Tina og Kristoffer

Þar til næst Bæ Bæ allir

Engin ummæli: