þriðjudagur, 9. september 2008

6. September Haustfagnaður Íslendingafélagsins í Sönderborg.

Sæl og blessuð öll sömul.

Haustfagnaður Íslendingafélagsins í Sönderborg fór fram í Katrínarlundi þann 6. september og tókst í alla staði frábærlega.
Við röltum þangað með vinafólki okkar þeim Sigrúnu og Reyni ásamt börnum þeirra þremur og hundi. Það var spáð rigningu þenna dag en eins og fólk sér á myndunum þá var bara sól og blíða.
Börnin gersamlega blómstruðu og vissi maður varla af þeim allan daginn.
Þarna voru grillaðar pylsur og kótelettur, gos og bjór var í boði og punkturinn yfir iið var Íslenskt nammi í lokinn.
Eftir fögnuðinn í lundinum buðu Sigrún og Reynir okkur heim í hangikjöt og verður að segjast að sennilega er þetta lang besti maturinn síðan við fluttum út. Takk kærlega fyrir okkur :).
Við karlarnir fengum síðan útgönguleyfi um kvöldið og fórum við á Loftið ( Aðsetur Íslendingafélagsins í Sönderborg). Þar var boðið uppá ódýrar veitngar í blautari kantinum og skemmti atriði að Íslenskum sjóara sið !!!!!!!!.

Þetta var sem sagt frábær dagur í alla staði og gaman að hitta landa sína.

Læt þetta duga um þennan dag.

Engin ummæli: