fimmtudagur, 4. september 2008

A-Z eru ekki allveg að standa sig

Góðan daginn allir

Í gær áttum við að fá slatta af húsgögnum eftir 8 daga bið frá Versluninni A-Z hér um bil í næsta húsi við okkur. Anna beið heima allan daginn og ekkert gerðist, þegar ég kom heim úr skólanum kl 18:30 þá bað ég Önnu að hringja og tjekka á þessu. Fengum við þá það svar að það hefði verið keyrt út um morguninn og enginn verið heima ???
Anna sat á gólfinu að horfa á imban með stelpunum allan morguninn sem er við gluggan hjá útidyrahurðinni. Við urðum frekar reið þegar þau vildu meina að við værum bara að ljúga til um að hafa verið heima þegar komið var og endaði þetta með því að við gætum ekki fengið þessi húsgögn fyrr en á föstudag. Þess má kanski geta að þetta var sófi fyrir stofuna, sófaborð, sjónvarpsborð og skennkur. Sem sagt allt í stofuna sem er búin að vera hálf tóm síðan við komum í stóra húsið.
Um daginn hittum við frábært íslenskt par niður á strönd og fékk anna símanúmerið hjá stelpunni sem heitir Sigrún sem er varla frá sögu færandi nema að Anna hringdi í Sigrúnu og kallinn hennar sem heitir Reynir kom á bíl og reddaði okkur allgerlega.
Við sem sagt straujuðum bara upp í búð og sóttum dótið.
Þjónustulund er eitthvað sem vanntar allgerlega í Dani.

bless bless í bili

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ísland best í heimi... hehe
Gaman að geta kvittað.....loksins!!!!
Rosalega flott nýja húsið ykkar, vonandi getum við kíkt í heimsókn til ykkar sem allra fyrst. Söknum ykkar, kossar og knús :)

kv. frá Bifröst