miðvikudagur, 10. desember 2008

Komin tími til skrifa

Jæja gott fólk þá eru smá fréttir af okkur.
Anna fékk vinnu eins og flestir vita í afleisingum og er sú törn búin í bili, í skólanum hjá mér er búið að vera brjálað að gera.
Amma Gunna Bína og afi Keli komu í heimsókn til okkar í 11 daga, frá 14 - 26 nóv.
Þar sem Anna var að vinna og nóg að gera hjá mér í skólanum náðist ekki að gera margt en þó var eitthvað brasað. Við fórum til Horsens til Helga bróður ömmu Gunnu Bínu og Hrefnu konunnar hans í heilan dag og borðuðum dýrindis kjúlla. Við keyrðum til Hamborgar í Þýskalandi og voru amma og afi að koma þangað aftur eftir 20 ára fjarveru :). Að sjálfsögðu fórum við út að borða með ömmu og afa á Mongolían Barbique sem er möst fyrir alla gesti og voru þau held ég bara mjög sátt við það. Helgi og Hrefna komu svo til okkar og borðuðum við saman og börnin léku sér.
Utan við þetta voru stelpurnar bara límdar við ömmu og afa og í heildina litið var frábært að fá smá heimsókn.
Nú er prófatörn hjá mér og klárast hún 16 des. Anna er búin að setja upp þó nokkuð af jólaskrauti og eru sumir nágranar okkar ekkert síðri en ljósabrjáluðu Íslendingarnir. Miðbærinn er orðin svaka jólalegur og okkur er farið að hlakka mikið til jólana í nýja landinu okkar. Og að fá ömmu Helgu, afa Bjössa og Magnús frænda í heimsókn til okkar annan í jólum. :)
Við biðjum kærlega að heilsa öllum heima fyrir.
Bestu kveðjur fólkið í baunalandi.

Ég er búinn að setja inn 3 nýjar myndamöppur og er hægt að skoða þær HÉR

Engin ummæli: