laugardagur, 18. október 2008

Kreppu heppni.

Góðan og blessaðan daginn
Af okkur er ekki mikið að frétta annað en það að lífið er farið að ganga sinn vanagang. Nýja brumið er farið og daglegt amstur hér er orðin venjuleg rútína eins og það var heima.
Síðustu viku var ég (Gunni) í vetrarfríi í skólanum og þar sem engir peningar berast hingað frá fróni var bara legið og slappað af, stelpurnar eru líka það nýbyrjaðar á leikskóla að aðlögunin var varla búin svo þær voru bara á leikskólanum í vetrarfríinu.
Í gær tíndum við vínberin sem eru hjá okkur, þau voru sett í bala og stelpurnar fengnar til að stappa á þeim. Reynt var að gera vínberjasafa og dúllaði Anna við að gera vínberjagel. Rakel finnst vínberjasafinn rosalega góður en ég og Malín finnst hann ekkert spes. Ef einhver getur sent okkur uppskrift til að nýta vínber væri það frábært.

Nýjar myndir af vínberjaframleiðsunni má sjá HÉR.

Magnús Jónsson á afmæli í dag og óskum við honum innilega til hamingju með daginn.

Verið bargblessuð og sæl að sinni

Gunni Hall

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jæja... Ég er komin með nóg af þessu kreppubloggi..

Hér heima hefur allt sinn vanagang í kreppunni. Miðstjórnarfundur hjá Framsókn í dag sem var æðislegur.

Svo eru bara verkefnaskil og próf framundan með 100% vinnu svo lífið er púsluspil!

Hlakka til að heyra frá vinnunni þinni Anna, vonandi gengur vel!

Nafnlaus sagði...

jæja, ég auglýsi hér með eftir nýju bloggi og helst myndum af fallegu frænkum mínum (það mega alveg laumast með myndir af ykkur gamla settinu).

kv. frá Bifröst