Jæja þá fer að líða að jólum og Sönderborg orðinn svaka flottur jólabær. Ég er kominn í smá jólafrí og nú á bara að stjana við fjölskylduna.
Mamma, Pabbi og bróðir Önnu koma annan í jólum og verður svaka stuð og góður matur þá.
Hrefna og Helgi bróðir mömmu ætla að koma fyrir jól og eyða degi með okkur.
Við erum að fara í útanlansferð til þýskalands að kaupa í matinn fyrir hátíðina.
Það er búið að vera eitt jólaball hjá Malín í leikfimi-hópnum hennar og erum vip búin að kaupa risa jólatré.
Ég setti inn nýjar myndir og þær er hægt að sjá HÉR
Jólakveðjur frá Baunalandi
laugardagur, 20. desember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Gleðilegt ár ;)
kv. Friðbjörg og familí
Nú þarf að fara að setja inn nýjar fréttir og nýjar myndir.
kveðja
amma Helga
Skrifa ummæli